Níu stöðugildi voru lögð niður hjá Fenris Creations í kjölfar endurskoðunar á skipulagi við þróun á leiknum Eve Frontier. Í skriflegu svari til fréttastofu segir Eyrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri leikjaútgáfu Fenris, það ekki hafa áhrif á fleiri leiki eða starfsemi Fenris.