Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í gærkvöldi og nótt, meðal annars vegna umferðarlagabrota, þjófnaða og manns sem olli ónæði í verslunarmiðstöð. Fjórir ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum vímuefna en allir reyndust þeir jafnframt sviptir ökuréttindum. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Við almennt umferðareftirlit stöðvaði lögregla þrjá ökumenn sem reyndust undir áhrifum...