Í litlu glerbúri í Glæsibæ er Arnar Stefánsson með saumaverkstæði þar sem hann gerir að fötum, gardínum og öðru slíku. Hann lifir drauminn, segir að hugmyndin hafi byrjað sem brandari á steypunni í Kolaportinu en er nú kominn yfir á marmarann í Glæsibæ og upplifir sig eins og köttinn Diego í Skeifunni.