„Einhver talar hærra við þig vegna þess að þú talar ekki nógu góða íslensku. Annar hunsar þig. Þetta virðast kannski smávægileg atvik, en þegar þau endurtaka sig stöðugt geta þau haft mikil áhrif á sjálfsmynd þína og líðan.“Þannig lýsir Joanna Marcinkowska, sérfræðingur í fjölmenningu og inngildingu, dæmum um öráreitni sem erlendir háskólanemar geta orðið fyrir. Hún segir að niðurstöður nýrrar rannsóknar sýni jafnframt tengsl milli þess að upplifa fordóma og verri andlegrar líðanar.Joanna hefur undanfarin tvö ár stýrt verkefninu „Inngilding í íslensku háskólasamfélagi“. Í pólskumælandi hlaðvarpi RÚV, Wyspa, ræðir hún reynslu nemenda, niðurstöður rannsóknarinnar og hvernig íslenskir háskólar geti betur mætt þörfum fjölbreytts nemendahóps. AÐ SITJA ÚTI Í HORNI OG ÞORA EKKI AÐ TALA Ein frá