Það rignir víða um land í dag en þurrt að kalla norðaustan- og austanlands, styttir svo upp vestast þegar fer að kvölda. Þá er hiti 6 til 13 stig og spáð hlýjasta veðrinu fyrir norðan. Hvassast á norðvestanverðu landinu og útlit fyrir sunnan 8 til 15 metra á sekúndu. Næstu daga kólnar heldur í veðri.