Ungverjar gerðu skjöl leynilögreglunnar frá tímum kommúnismans opin almenningi í fyrsta sinn í gær. Þar með eru nöfn og persónuupplýsingar um 60.000 manns sem leyniþjónustur kommúnista réðu til starfa orðin opinber og aðgengileg öllum.Dagurinn sem gögnin eru gerð opinber er táknrænn fyrir ungversku þjóðina en fyrir sjötíu árum, 4. nóvember 1956, réðust Sovétríkin inn í Ungverjaland til að berja niður ungversku byltinguna.Breska ríkisútvarpið segir að ákvörðun stjórnvalda um að gera skjölin aðgengileg hafi verið umdeild. Gagnrýnendur segja að þessi ákvörðun komi of seint, það vanti inn í skjölin og þetta muni valda óþarfa sundrung og þjáningu.Forsætisráðherra Ungverjalands, Péter Magyar, hefur varið þessa ákvörðun stjórnvalda um að birta skjölin og gerði þetta meðal annars að einu af sínum