Þýskur stjórnmálamaður fannst látinn á hótelherbergi

Hubert Aiwanger fannst látinn á hótelherbergi í Berlín.EPA / CLEMENS BILANÞýskur stjórnmálamaður fannst látinn á hótelherbergi í Berlín í gær.Hubert Aiwagner var 55 ára og varaforsætisráðherra Bæjaralands. Hann var jafnframt leiðtogi Frjálsa kjósendaflokksins í Bæjaralandi og efnahagsráðherra Bæjaralands. Undir hans forystu komst flokkur hans í fyrsta sinn í ríkisstjórn í sambandslandinu árið 2018.Ekki liggur fyrir hvernig dauða Aiwagners bar að og hafa lögregla og saksóknari hafið rannsókn á dauða hans. Rannsókn þeirra miðast að því að finna dánarorsök og undir hvaða kringumstæðum hann lést, en jafnframt að ganga úr skugga um hvort eitthvað saknæmt hafi átt sér stað.
Þýskur stjórnmálamaður fannst látinn á hótelherbergi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar