Suðurkóreski sjóherinn tekur þátt í aðgerðum nærri Hormússundi

Suður-Kórea ætlar að senda eftirlitsflugvélar og sprengjuleitarteymi til að taka þátt í aðgerðum sem miða að því að halda siglingarleiðinni um Hormússund opinni. Suðurkóreski herinn ætlar ekki að taka þátt í stríðinu með beinum hætti eða senda frekari liðsauka, heldur miðast þátttaka sjóhersins við lofteftirlit, ómönnuð yfirborðsför og fjarstýrð tæki til neðansjávarkönnunar.Varnarmálaráðuneyti Suður-Kóreu greindi frá þessu í morgun. Nú þegar er sjóhersdeild suðurkóreska hersins úti fyrir ströndum Adenflóa við Sómalíu, svokölluð Cheonghae-sjóherdeild gegn sjóræningjum. Markmið aðgerða hennar þar er að vernda flutningaskip gegn sjóræningjum.Til stendur að stækka starfssvæði Cheonghae-sjóhersdeildarinnar allt að hafsvæðinu sunnan Óman nærri Hormússundi. Hægt er að framlengja úthald sjóhersdei
Suðurkóreski sjóherinn tekur þátt í aðgerðum nærri Hormússundi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar