Volodomyr Zelensky Úkraínuforseti hefur sæmt bandarísku forsetafrúna Melaniu Trump æðstu orðu Úkraínu sem veitt er konum. Greint var frá þessu í forsetatilskipun í gær.Forsetafrúin er sæmd heiðursorðu af fyrstu gráðu sem kennd er við Olgu prinsessu fyrir sérstakt framlag hennar til mannúðaraðstoðar í Úkraínu með því að eiga frumkvæði að vopnahléinu í Oleshky í síðustu viku.Orðan er veitt konum fyrir framlög þeirra til úkraínska ríkisins, vísinda, mennta, menningar og góðgerðarstarfa. BÝÐUR TIL MÓTTÖKU Í HVÍTA HÚSINU Um 750 íbúar voru fluttir á brott frá Oleshky á meðan á vopnahléinu stóð. Breska ríkisútvarpið segir að sérstakir umboðsmenn Rússa og Úkraínumanna hafi tekið þátt í neyðaraðstoðinni og séð um flutning á íbúum. Forsetafrúin hefur boðið þeim auk háttsettra embættismanna til mó