Grábjörn talinn hafa orðið mæðgum að bana í Kanada

Mæðgur fundust látnir í bresku Kólumbíu í Kanada í vikunni, talið er að grábjörn hafi orðið þeim að bana. Yfirvöld útiloka ekki að fleiri en einn björn hafi verið að verki.Mæðgurnar fóru í göngutúr nærri heimili sínu í Bella Coola í Bresku Kólumbíu á sunnudag. Fjölskylda þeirra lýsti eftir þeim þegar þær skiluðu sér ekki heim úr göngunni.Lík móðurinnar fannst á mánudag og lík dótturinnar á þriðjudag. Báðar fundust þær skammt frá Bella Coola. Yfirvöld leita nú bjarndýrsins eða dýranna og hafa íbúar verið hvattir til að halda sig fjarri svæðinu á meðan leit stendur yfir.Í nóvember í fyrra réðst grábjörn á hóp grunnskólabarna og kennara á sama svæði. Einn fullorðinn og þrjú börn slösuðust alvarlega í þeirri árás. Björninn fannst aldrei. Grábirnir geta verið árásargjarnir á þessum árstíma þega
Grábjörn talinn hafa orðið mæðgum að bana í Kanada

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar