Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir skýra og stefnu í útlendingamálum ekki vera harðneskju. Til þess að samfélagið geti verið frjálslynt og opið þurfi að vera skýrari rammi um útlendingamál, sem og aðra málaflokka. Það gangi ekki að útlendingamálin séu eini málaflokkurinn þar sem stjórnvöld hafi ekki skýra sýn á að hverju sé stefnt.Þorbjörg hefur boðað aðgerðir og herta reglugerð í málefnum útlendinga. Frumvarp hennar um breytingu á dvalarleyfiskafla útlendingalaga var afgreitt í ríkisstjórn í lok október. Í ársbyrjun var frumvarp hennar samþykkt um að afturkalla alþjóðlega vernd ef útlendingur fremur alvarleg eða ítrekuð afbrot eða telst ógn við öryggi ríkisins. MARKMIÐIÐ AÐ AFNEMA SÉRÍSLENSKAR REGLUR Þorbjörg segist skoða mál útlendinga sérstaklega með tilliti til