Ofbeldismálið sem vakti heimsathygli: „ Mér var óskiljanlegt hvað þeir voru ungir, þótti það enn sárara. … Þessi kona sem lá þarna hreyfingarlaus og þeir níddust á“
Í tíu ár hafði eiginmaður Gisèle Pelicot byrlað henni lyf, nauðgað henni og boðið fjölda ókunnugra manna inn á heimili þeirra til að misnota hana á meðan hann tók árásirnar upp á myndband. Þegar lögreglan komst á snoðir um málið fyrir tilviljun rataði það í fréttir um allan heim.