Jón Jósep Snæbjörnsson, eða Jónsi sem kenndur er við hljómsveitina Í svörtum fötum, hefur hætt störfum hjá fjártæknivefnum Aurbjörgu. Hann tekur við sem þjónustustjóri hjá tryggingadeild Landsbankans. Jónsi hvetur vini sína á gamla vinnustaðnum til að taka stigann.