Sautján liggja inni á Vogi

Færri innlagnir á sjúkrahúsið Vog eru sérstaklega alvarlegar fyrir fólk sem neytir efna sem valda mögulega lífshættulegum fráhvörfum, segir læknir. Vegna manneklu eru aðeins 17 pláss af 45 í notkun á sjúkrahúsinu Vogi.Baldvina Ýr Hafsteinsdóttir forstjóri SÁÁ segir í skriflegu svari til fréttastofu að ráðstöfunin sé tímabundin og stefnt sé að því að taka við fleiri sjúklingum smám saman á næstu vikum.Margrét Petrína Hallsdóttir er læknir og stjórnarmaður í félagasamtökunum Það er von. Þau aðstoða fólk sem glímir við fíknivanda og aðstandendur þeirra.Hún segir líklegt að fækkun innlagna hjá Vogi auki álag á læknavakt og bráðamóttöku. Þá sé sennilegt að fólk viti einfaldlega ekki hvert það eigi að leita til að komast í afeitrun. „Sem er náttúrlega það sem er oft þörfin þegar fólk er að byrja
Sautján liggja inni á Vogi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar