Vill að borgin sjái sóma sinn í að setja rafmagnið aftur á: „Ég meina það er korter í jól“

Í september var tilkynnt að lokað yrði fyrir vatn og rafmagn í hjólhýsabyggðinni við Sævarhöfða í byrjun nóvember og á mánudaginn var því fylgt eftir. Deilur hafa lengi staðið um byggðina. „ÉG ER BARA EKKI AÐ SKILJA VIÐ HVAÐ ÞEIR ERU HRÆDDIR“ Bergþóra Pálsdóttir talskona íbúanna segir þau upplifa að þau séu hvergi velkomin. Hún segir hópinn hafa barist fyrir því að fá aðra lóð. Þau hafi sótt um að fá pláss á lóðinni þar sem Sorpa var áður á Sævarhöfða en fengið synjun.„Ég bara er ekki alveg að skilja við hvað þeir eru hræddir, ég meina þetta er bara alls staðar í heiminum, líti þau bara í kringum sig. Ég ætla að vona að Reykjavíkurborg sjái sóma sinn í því að setja rafmagnið á hjá fólkinu, ég meina, það er korter í jól.“ EKKI VERIÐ BOÐIN ÖNNUR ÚRRÆÐI Bergþóra segir tólf hjólhýsi vera
Vill að borgin sjái sóma sinn í að setja rafmagnið aftur á: „Ég meina það er korter í jól“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar