Leiðtogar Demókrataflokksins segjast hafa heyrt hátt og skýrt í bandarískum kjósendum. Þeir muni vinna hörðum höndum að því að koma til móts við kröfur þeirra, á sama tíma og þeir ætla að nota þingið til að rannsaka Donald Trump og starfsmenn hans í Hvíta húsinu og ráðuneytum Bandaríkjanna.