Forsætisráðherra vill setja á fót sanngirnisbótasjóð sem tekur til barna sem urðu fyrir illri meðferð eða ofbeldi í vistun utan heimilis fyrir atbeina stjórnvalda. Áhersla verður lögð á sálrænan stuðning.Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra kynnti frumvarpið á ríkisstjórnarfundi í gær og það var svo lagt fram í samráðsgátt síðdegis.Með frumvarpinu er komið á varanlegu úrræði fyrir þá sem urðu fyrir illri meðferð eða ofbeldi í vistun utan heimilis sem börn.Úrræðið tekur til vistunar frá mars 1947, bæði á opinberum stofnunum og einkaheimilum. Bætur verða í þremur flokkum, ein, þrjár eða fimm milljónir, og sálrænn stuðningur verður háður faglegu mati á þörfum viðkomandi.Sjálfstæð sjóðsstjórn tekur ákvarðanir á grundvelli umsókna en móttaka þeirra hefst 1. janúar 2028 verði frumvarpið að lög