JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, kennir stríðinu í Íran um tap Repúblikana í þingkosningunum. Hann sagði jafnframt að þeir sem studdu stríðsreksturinn yrðu að horfast í augu við þá staðreynd að þeir gætu hafa glatað völdum í þinginu um ókomin ár vegna ákvörðunarinnar. Þetta sagði hann í færslu á samfélagsmiðlum.Demókratar tryggðu sér meirihluta í báðum deildum þingsins í kosningunum. Enn er verið að telja atkvæði í tveimur ríkjum þar sem kosið var um sæti í öldungadeildinni. Það eru Alaska og Mississippi. Afar mjótt er á munum í báðum ríkjum og tíma gæti tekið að telja atkvæðin, jafnvel nokkrar vikur. „ÞAÐ VITA ALLIR HVERS VEGNA VIÐ TÖPUÐUM“ Í færslunni, sem er nokkuð löng, vísar Vance í orð Donalds Trump sem sagði að stríðið hefði átt þátt í tapinu en það hefði samt verið réttlætan