Hvetur þingið til að skoða alla anga starfsloka Harðar

Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra flutti Alþingi skýrslu um málefni Landsvirkjunar í dag. Óskað var eftir skýrslunni vegna birtingu RÚV á gögnum sem tengjast uppsögn forstjórans Harðar Arnarsonar, meðal annars um minnisblað þar sem Hörður lýsir áhyggjum af því sem hann upplifði sem pólitísk afskipti.Stór hluti umræðunnar sneri að því hvort fjármálaráðherra hafi sagt þinginu ósatt í fyrirspurnartíma þann 19. október. Þá var hann spurður að því hvers vegna Hörður hafi hætt störfum og var svarið að það væri vegna ágreinings um stjórnarhætti. Það væri sagan öll.Daði Már greindi frá því að hann hafi verið upplýstur um ábendingar Harðar þann 11. september, tæpum þremur mánuðum eftir að Hörður skrifaði minnisblaðið. Stjórnarandstæðingar vilja meina að ráðherrann hafi haldið þeim upplýsingu
Hvetur þingið til að skoða alla anga starfsloka Harðar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar