Vilja aðra Vestmannaeyjaferju til viðbótar

Aðsend / Leifur HarðarsonKarl Gauti Hjaltason þingmaður Miðflokksins og fimm aðrir þingmenn Suðurkjördæmis úr Miðflokki, Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki hafa lagt fram tillögu á Alþingi um smíði eða kaup á aukaferju til siglinga milli Vestmannaeyja og lands.Flutningsmenn vilja að innviðaráðherra verði falið að undirbúa slíka ferju yfir sumartímann sem jafnframt verði varaferja fyrir Herjólf og Baldur. Bent er á að ferjusamgöngur við Vestmannaeyjar séu mikilvægur hluti af samgöngukerfinu, ljóst sé að Herjólfur anni ekki eftirspurn, einkum á sumrin. Dæmi séu um langa biðlista og að íbúar komist ekki upp á land um helgar þar sem fullbókað sé í allar ferðir.
Vilja aðra Vestmannaeyjaferju til viðbótar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar