Karl Wernersson athafnamaður stóð fyrir fundi í Smárabíói klukkan 13 undir yfirskriftinni Sautján ár í súpunni. Þar sem hann fór yfir sína hlið á þeim sautján árum sem liðin eru frá gjaldþroti Milestone. Fundurinn var vel sóttur og sjá mátti mörg þekkt andlit úr atvinnulífinu í salnum.