10 þúsund nemendur mótmæltu í Kaupmannahöfn

Nemendur víða í Danmörku tóku sér frí í skólanum í dag til að mótmæla skertum styrkjum til náms sem stjórnvöld fyrirhuga.Margir tóku rútu til Kaupmannahafnar þar sem var skipulögð mótmælaganga frá Ráðhústorginu að Kristjánsborgarhöll, en að auki voru mótmæli á öðrum stöðum í Danmörku og á sumum stöðum lokuðu mótmælendur fyrir aðgang að skólum. Talið er að um 10 þúsund manns hafi mætt á mótmælin í Kaupmannahöfn.Breytingin sem verið er að mótmæla felur í sér að nemendur sem búa í foreldrahúsum fá ekki lengur námsstyrk ef foreldrar þeirra eru með meira en 710.077 danskar krónur í árstekjur fyrir skatt. Þetta eru um 13 milljónir íslenskra króna. Þá er styrkurinn skertur ef tekjurnar eru á milli 419.589 króna og 710.077 króna. Lægri upphæðin jafngildir um 7,7 milljónum íslenskra króna.Að auki þ
10 þúsund nemendur mótmæltu í Kaupmannahöfn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar