Umboðsmaður Alþingis hefur krafið Útlendingastofnun upplýsinga um og skýringa á meðalmálsmeðferðartíma hjá stofnuninni.Í erindi umboðsmanns segir að honum hafi borist allmargar kvartanir um tafsama málsmeðferð Útlendingastofnunar (ÚTL). Þar segir að í skýringum ÚTL, í þeim tilfellum sem þeirra hafi verið óskað, hafi verið vísað til mikilla anna og af því verði ráðið að tafirnar séu jafnan almennar og ekki bundnar við einstök mál.Umboðsmaður gerir meðal annars athugasemd við að á vefsíðu ÚTL virðist upplýsingar um meðalmálsmeðferðartíma aðeins miðaðar við samþykktarumsóknir. Umboðsmaður óskar eftir því að gerð sé grein fyrir því hvort þetta sé rétt og þá hvort stofnunin telji slíkar upplýsingar til þess fallnar að veita raunsanna mynd af málsmeðferðartíma.Upplýsinga- og skýringabeiðni umboð