Stærsta Harry Potter verslun heims var opnuð í Oxford-stræti í Lundúnum í dag. Aðdáendur biðu hennar með mikilli eftirvæntingu og röð var farin að myndast í nótt. Fólk kom víða að, meðal annars alla leið frá Ástralíu. Warwick Davis leikari opnaði búðina formlega með því að fara með töfraþulu í anda galdrastráksins.Mótmælt var fyrir utan verslunina vegna neikvæðrar afstöðu höfundar Harry Potter bókanna, JK Rowling, til transfólks. Meðal annars var fólk hvatt til að fjármagna ekki hatursorðræðu.