Jóhannes Egilsson, framkvæmdastjóra Vonar harðfiskverkunar, langaði að gera harðfisk aðgengilegri fyrir landann. Eftir margar tilraunir í eldhúsinu heima komst hann loks að niðurstöðu: harðfiskur hjúpaður í karamellusúkkulaði annars vegar og dökkt súkkulaði hins vegar.Jóhannes segir að viðbrögð fólks hafi ekki staðið á sér. Fólki hafi fundist þetta frekar skrítið og hafi verið frekar smeykt við að smakka og einhverjir hreinlega neitað en þeir sem hafi látið slag standa hafi verið sammála um að þessi samsetning sé í alvörunni góð.Það er þorskur sem varð fyrir valinu. Hann er þurrkaður með nýrri aðferð sem gerir hann að einhvers konar kexi sem er svo hjúpað með dýrindis súkkulaði. 150 grömm af þorski fara í hvern poka sem er 55 grömm eftir þurrkun og hjúpun.