Einn af hverjum 6.000 sem leigja sér rafskútu endar hérna bráðamóttökunni. Þriðjungur fullorðinna er undir áhrifum áfengis.„Virku dagana er það 17% að meðaltali sem er undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna þegar að þeir slasast á rafskútum en um helgar er um helmingurinn sem viðurkennir að hafa verið undir áhrifum þegar slysið varð,“ segir Hjalti Már Björnsson, bráðalæknir. RAFSKÚTUSLYS EÐA ÁFENGISSLYS? Fjórir læknar hafa birt niðurstöður rannsóknar sinnar á rafskútuslysum og um þær er fjallað í Læknablaðinu sem kom út í dag. Hjalti Már er einn þeirra.„Það er alveg augljóst mál að áfengi er þarna mjög skaðlegt. En það er spurning líka hvort við eigum að tala um þetta sem rafskútuslys eða áfengisslys,“ segir Hjalti Már.Getur þú lýst þeim áverkum sem þú og þið hér hafið meðhöndlað ef