Karlmaður um þrítugt játar skemmdarverk á bílum

Maður um þrítugt játaði að hafa unnið skemmdarverk á bílum á Seltjarnarnesi aðfararnótt mánudags. Rannsókn lögreglu er lokið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.Rúður voru brotnar í tæplega 30 bílum við Nesveg, Kirkjubraut og Austurströnd á Seltjarnarnesi. Í tilkynningu lögreglu segir að henni hafi borist margar ábendingar við rannsókn málsins.Bíleigendur uppgötvuðu skemmdirnar að morgni 2. nóvember. Einn þeirra bíleiganda sem fréttastofa ræddi við sagði að búið hafi verið að brjóta rúður þegar hann kom út. Hann hafi fyrst tekið eftir því á sínum bíl en síðan séð að rúður hafi líka verið brotnar á öðrum bílum.„Þegar ég kom aftur út talaði ég við nágranna minn sem hafði lent í því sama og að því er virðist öll gatan. Þetta var erfiður mánudagur.“Stutt er síð
Karlmaður um þrítugt játar skemmdarverk á bílum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar