Fulltrúar Viðreisnar í menntaráði Kópavogs vilja að Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra fresti innleiðingu nýs einkunnakvarða hjá tíundubekkingum. Meirihluti ráðsins hafnaði tillögunni í gær en gagnrýnir jafnframt undirbúning ríkisstjórnarinnar og segir skólana ekki hafa fengið nægan stuðning.