Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir ítarlegum skýringum frá Útlendingastofnun vegna langvarandi tafa á afgreiðslu umsókna og mögulegs misræmis í upplýsingum stofnunarinnar um málsmeðferðartíma. Fjölmargar kvartanir hafa borist umboðsmanni undanfarin misseri vegna þess hversu langan tíma tekur að afgreiða mál hjá stofnuninni. Þetta kemur fram í bréfi sem sent var Kristínu Völundardóttur, forstjóra Útlendingastofnunar, þann 20. október síðastliðinn sem umboðsmaður Alþingis...