Munaði mjóu að rúta lenti í grjóthruni undir Eyjafjöllum

Grjót hrundi úr Holtsnúpi undir Eyjafjöllum og yfir þjóðveginn í morgun. Nýuppsettar hrunvarnir gripu mestan hluta þess en stór hnullungur rauf þær og þveraði veginn.Einar Viðar Viðarsson, verktaki og íbúi á Ásólfsskála, gerir ráð fyrir að bjargið hafi verið um 10 tonn. „Og endaði 15-20 metrum sunnan við veginn,“ segir hann.Einar kom að staðnum nokkrum mínútum eftir grjóthrunið. Hann segir að fyrsti bíllinn á staðinn eftir atburðinn hafi verið rúta með á bilinu 40 til 50 manns innanborðs.„Ef rútan hefði verið einhverjum tugum sekúndna á undan en hún var hefðu sirka tíu getað verið dánir. Þetta er 10 tonna bjarg sem fer.“Hann segir bílstjóra rútunnar hafa verið nokkuð skekinn.Kona lést þegar grjót hrundi á bíl sem hún ók á þjóðveginum við Holtsnúp í Steinafjalli í mars 2025. Í sumar var var
Munaði mjóu að rúta lenti í grjóthruni undir Eyjafjöllum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar