Borgarfulltrúi Vinstrisins segir nýja fjárhagsáætlun meirihlutans gefa til kynna að óvissu- og óreiðuástand sé fram undan í rekstri borgarinnar. Margt sé óskýrt og hagræðingartillögur séu óútfærðar. FJÁRHAGSÁÆTLUN MEIRIHLUTANS ÓSKÝR OG SKORTI YFIRSÝN Borgarstjórnarmeirihlutinn stefnir á að borgarsjóður skili 2,8 milljarða króna afgangi á næsta ári, samkvæmt fjárhagsáætlun sem kynnt var í gær. Á næstu fimm árum er stefnt að því að borgarsjóður verði rekinn með 16,8 milljarða króna afgangi.„Það er ýmislegt mjög óskýrt. Það skortir yfirsýn og það er talað um niðurskurð til þess að geta fjárfest í grunninnviðum. En svo þegar maður rýnir í tölurnar þá erum við ekki að sjá það í þessari fjárhagsáætlun eða fjárfestingaáætlun,“ segir Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Vinstrisins.„Þann