Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur opnað netspjall á heimasíðunni lrh.is þar sem almenningur getur nú haft samband við þjónustuborð lögreglunnar. Netspjallið var opnað í sumar og hafa þegar hundruð netspjalla farið fram. Hægt er að hafa samband undir nafni, með auðkenningu eða nafnlaust.