Halla Tómasdóttir forseti tók við fyrsta stóra Neyðarkallinum við höfuðstöðvar Hjálparsveitar skáta í Reykjavík laust fyrir hádegi. Sala Neyðarkalls björgunarsveitanna hefst í dag og stendur fram á sunnudag.Forseti Íslands er opinber verndari Slysavarnafélagsins Landsbjargar.Ólafía Aðalsteinsdóttir afhenti forsetanum kallinn. Hún var meðal fyrstu kvenna á útkallsskrá Hjálparsveitar skáta í Reykjavík.„Ég er ykkur ótrúlega þakklát og ég segi sem fyrr að Ísland væri ekki byggilegt án ykkar,“ sagði Halla þegar hún tók á móti Neyðarkallinum.