Fjarskiptastofa óskaði eftir því að símafyrirtæki lokuðu á alla síma sem ekki geta hringt í Neyðarlínuna fyrir 15. nóvember. Þetta staðfesti innviðaráðherra í svari við fyrirspurn Ingveldar Önnu Sigurðardóttur á Alþingi. Sú vinna tefst en forstjóri Fjarskiptastofu segir ólíðandi að einhverjir nái ekki í Neyðarlínuna í neyðartilvikum. Fjarskiptastofu skorti lagalegar heimildir til þess að krefjast lokana.„Við sendum út þessi tilmæli nýlega. Þetta er tæknilega séð nokkuð flókið mál en félögin eru að greina stöðu þessara tækja sem eru ósamhæfð og við erum að vinna með þeim að því. Það mun dragast eitthvað fram yfir þessa dagsetningu sem er 15. nóvember en þetta er stefnan,“ segir Hrafnkell Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofu. Ekki er hægt að hringja í neyðarnúmerið 112 úr 3-4000 símum, eða 0,