Greiða úr bókunum ferðamanna sem höfðu bókað gistingu í turninum

Stöðvun framkvæmda við byggingu hótelturnsins á Skúlagötu hefur all nokkur áhrif á ferðaþjónustu. Búið var að bóka gistingu fyrir ferðamenn allt fram til ársins 2028.Fréttastofa greindi frá því í gær að framkvæmdir við byggingu 17 hæða Radisson Red hótels við Skúlagötu hefðu verið stöðvaðar. Öllum verktökum var gert að yfirgefa byggingarsvæðið á mánudaginn með þeim skýringum að búið væri að loka fyrir frekari fjárveitingar til verkefnisins.Um nokkurt skeið hefur verið sagt að opnun hótelsins væri á næsta leiti. Það hefur þó dregist töluvert, meðal annars vegna þess að fullbúnar gámaeiningar sem fluttar voru til landsins urðu fyrir vatnstjóni.Hótelherbergin áttu að vera rúmlega tvö hundruð talsins og var þegar byrjað að taka við bókunum, jafnvel fram til ársins 2028. Viðmælendur fréttastofu
Greiða úr bókunum ferðamanna sem höfðu bókað gistingu í turninum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar