KR-ingarnir ræddu um ótrúlegt atvik á Akureyri - „Geðbilað skot"

Aron Birkir Stefánsson skoraði mark ársins í Bestu deildinni en markvörðurinn skoraði beint úr aukaspyrnu af eigin vallarhelmingi. Markið var þriðja mark Þórs í heimaleik gegn KR og kom á 14. mínútu. Staðan var þarna orðin 3-0 fyrir Þór sem hafði þá fengið eitt stig úr síðustu níu leikjum sínum. KR náði að koma til baka í leiknum og endaði leikurinn með 3-3 jafntefli. Talsverður vindur var á VÍS-vellinum og nýtti Aron Birkir sér meðvindinn vel þegar hann lét vaða. Áður hafði Þór skorað eftir gjöf frá KR-ingum og beint úr hornspyrnu. KR-ingarnir Aron Sigurðarson og Arnór Ingvi Traustason voru til viðtals í ChessAfterDark og ræddu þar um markið.
KR-ingarnir ræddu um ótrúlegt atvik á Akureyri - „Geðbilað skot"

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar