Systurnar Katla og Kara, dætur Guðmundar Benediktssonar og Kristbjargar Ingadóttur, hafa framlengt samninga sína við KR. Katla (2007) hefur samið út árið 2028 og Kara (2010) út árið 2029. Báðar eru þær uppaldar í KR og voru báðar mikilvægir hlekkir í sóknarleik liðsins á tímabilinu. KR endaði í 2. sæti Lengjudeildarinnar á liðnu tímabili og verður því í Bestu deildinni á næsta tímabili. Báðar voru þær valdar í lið ársins í Lengjudeildinni af þjálfurum deildarinnar og Kara var valin efnilegasti leikmaður deildarinnar.