Breski hárstílistinn og hárvörumógúllinn John Frieda er látinn, 75 ára að aldri. Frieda varð eftirsóttur hárstílisti meðal stjarnanna á sjöunda og áttunda áratugnum og vann meðal annars fyrir Twiggy, Jackie Kennedy og Mick Jagger. Hann er maðurinn á bak við Purdey-skálarklippinguna frægu og varð síðar þekktur fyrir vinsælar hárvörur sem báru nafn hans.