Tár, bros og brjáluð fagnaðarlæti

Gærdagurinn og nóttin voru ógleymanleg fyrir marga Bandaríkjamenn þegar Demókratar unnu sögulegan sigur í þingkosningum og tryggðu sér meirihluta í báðum deildum þingsins.„Við gerðum það!“ sagði Abdul El-Sayed, nýkjörinn öldungadeildarþingmaður í Michigan við fagnaðarlæti stuðningsfólks. Demókratinn Troy Jackson velti Repúblikananum Susan Collins úr sæti í Maine og sagði vinnandi fólk hafa tryggt sigurinn.Amy Acton, sem vann kjörið um ríkisstjóra Ohio, var með einföld skilaboð fyrir sitt stuðningsfólk. „Nú hefst bataferlið.“
Tár, bros og brjáluð fagnaðarlæti

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar