Erfiðar stjórnarmyndunarviðræður fram undan hjá Kristersson

Ulf Kristersson, sitjandi forsætisráðherra Svíþjóðar og leiðtogi Moderaterna, fékk í gær umboð til að mynda nýja ríkisstjórn. Þetta gerðist eftir að Elisabeth Thand Ringqvist, leiðtogi Miðflokksins, var ekki samþykkt í þinginu sem forsætisráðherra - nokkuð sem var viðbúið. Hennar tilraun var sú þriðja til að mynda ríkisstjórn frá kosningum sem fóru fram 13. september.Magdalena Andersson leiðtogi Jafnaðarmanna hefur í tvígang reynt að mynda stjórn Rauðu blokkarinnar, sem hennar flokkur leiðir. Það hefur ekki tekist, einkum þar sem Vinstri flokkurinn krefst þess að sitja í ríkisstjórn en Miðflokkurinn er á móti því. Þingið felldi svo tillögu um að Andersson yrði forsætisráðherra.Elisabeth Thand Ringqvis fékk þá umboðið og leitaði þá til flokka bæði í rauðu og bláu blokkinni. Það gekk heldur
Erfiðar stjórnarmyndunarviðræður fram undan hjá Kristersson

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar