Fá aðgang að netöryggislíkani OpenAI

OpenAI hefur veitt Umbru – þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins og netöryggissveitinni CERT-IS aðgang að sérhæfðu netöryggislíkani. Það er hluti af Daybreak sem OpenAI hefur byggt upp til að vinna að netvörnum.Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins segir að slíkur aðgangur sé aðeins veittur að undangengnu mati í gegnum Government Trusted Access for Cyber. Nota á aðganginn til að byggja upp þekkingu og reynslu á nýrri tækni sem getur styrkt netvarnir og öryggi stafrænnar þjónustu ríkisins. Merki OpenAI.AP / Michael Dwyer
Fá aðgang að netöryggislíkani OpenAI

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar