Reykjavíkurborg hefur enn ekki svarað fyrirspurn Mannlífs um uppsagnir 50 starfsmanna borgarinnar í tengslum við hagræðingaraðgerðir í miðlægri stjórnsýslu. Óskað var eftir upplýsingum um hvaða störf væru lögð niður, hvaða starfseiningar yrðu fyrir áhrifum og hvort stjórnunarstöður væru meðal þeirra starfa sem um ræðir. Uppsagnirnar hafa vakið athygli, ekki síst vegna þess að enn liggur ekki fyrir nákvæm sundurliðun á...