Danskir stúdentar mótmæla niðurskurði á ríkisstyrk til náms

Búist er við að þúsundir danskra ungmenna mótmæli í dag áformum stjórnvalda um að skera niður ríkisstyrki til náms. Samtök menntaskóla- og háskólanema og ungmennasamtök stjórnmálaflokka ætla að safnast saman á ráðhústorginu klukkan hálf tólf að íslenskum tíma og ganga saman að þinghúsinu.Þrjátíu þúsund nemar í fjörutíu framhaldsskólum víðsvegar um Danmörku taka þátt í mótmælunum með því að leggja niður störf. HERÐA SKILYRÐI FYRIR RÍKISSTYRKJUM TIL NÁMS Ríkisstjórnin vill fella niður ríkisstyrk til 81 þúsund námsmanna sem búa heima hjá foreldrum sínum sem hafa meira en 420 þúsund danskar krónur á ári í tekjur fyrir skatt. Það eru nærri 7,9 milljónir íslenskra króna.Námsstyrkir til stúdenta sem búa hjá foreldrum með tekjur á milli 420 -710 þúsund krónur á ári fyrir skatt verða lagðir af í
Danskir stúdentar mótmæla niðurskurði á ríkisstyrk til náms

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar