Héraðsdómur Reykjaness sýknaði í morgun Georgios Ntentes af ákæru um manndráp. Dómurinn klofnaði í afstöðu sinni til þess hvort ætti að sakfella Georgios eða sýkna hann. Meirihlutinn valdi að sýkna.Maðurinn sem Georgios var ákærður fyrir að myrða fannst látinn á heimili sínu á Kársnesi 30. nóvember í fyrra. Lögregla taldi fyrst að maðurinn hefði sjálfur veitt sér áverkana. Nokkrum dögum síðar var Georgios handtekinn og hnepptur í gæsluvarðhald. Honum var síðan sleppt en aftur úrskurðaður í gæsluvarðhald þegar fleira kom í ljós við rannsóknina.Georgios var ákærður fyrir að stinga manninn þrisvar sinnum í kviðinn, skera hann, stinga með egghvössu áhaldi í hálsinn og slá manninn með þeim afleiðingum að hann lést. Hann neitaði sök fyrir dómi.