Drógu verulega úr fjárfestingu

Hagnaður íslensks sjávarútvegs nam 51 milljarði króna í fyrra. Tekjur jukust um 12% á milli ára þrátt fyrir hækkun opinberra gjalda. Heiðrún Lind Marteinsdóttir er framkvæmdastjóri samtakanna.„Ég held að við getum sagt að þetta sé ágætisniðurstaða í tiltölulega erfiðu árferði. Árið var með ágætum hvað villta fiskinn varðar en við sjáum hins vegar að þrátt fyrir að afkoman sé ágæt þá er hún hins vegar sú næstlægsta á síðastliðnum fimm árum. Og opinber gjöld aldrei verið hærri á þessu tímabili,“ segir Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.Sjávarútvegurinn dró verulega úr fjárfestingum árið 2025. Heiðrún Lind segir það áhyggjuefni.„Við getum alveg velt því fyrir okkur hvort ekki geti verið samhengi þarna á milli, að gjaldtakan sé þá mögulega orðin þan
Drógu verulega úr fjárfestingu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar