Karlmaður hefur verið dæmdur í sex mánaða fangelsi, þar af einn mánuð óskilorðsbundinn, fyrir umfangsmikil fíkniefnalagabrot og ítrekuð umferðarlagabrot. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur 3. nóvember síðastliðinn. Maðurinn var jafnframt sviptur ökurétti ævilangt. Málið á rætur að rekja til lögregluaðgerða í Reykjavík í desember 2024. Við húsleit í bílskúrsrými fundu lögreglumenn 184 kannabisplöntur, rúm 4,4 kíló af maríhúana...