Kýldi unglingsstrák en var sýknaður

Dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur sýknaði í gær karlmann af ákæru um líkamsárás og barnaverndarbrot þrátt fyrir að hann hefði viðurkennt að hafa kýlt unglingsstrák tvisvar í höfuðið. Pilturinn fékk heilahristing og hlaut yfirborðsáverka.Atvikið átti sér stað um kvöldmatarleytið á þjóðhátíðardaginn 2022. Drengurinn sparkaði upp hurð að íbúð í blokk og hljóp í átt að lyftu þar sem þrír félagar hans biðu. HLJÓP MEÐ HNÍF Á EFTIR DRENGNUM Maðurinn sagðist hafa verið að skera melónu þegar útidyrahurðin opnaðist skyndilega og séð einhvern hlaupa í burtu. Hann hefði hlaupið eftir honum, lagt hnífinn frá sér og kýlt hinn tvisvar í höfuðið. Hann hefði síðan áttað sig á að þetta væri barn og þá hefði maðurinn róast.Lögreglumenn sem mættu á vettvang sögðu að sjá hefði mátt á hurðarkarmi að læsing út
Kýldi unglingsstrák en var sýknaður

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar