Gæti ráðist í dag hver fær stjórnarmyndunarumboð

Isaac Herzog, forseti Ísraels, hefur í dag viðræður við forystumenn í stjórnmálum um hverjum hann felur stjórnarmyndunarumboð. Stærstu fylkingarnar tvær í þinginu náði hvorug að tryggja sér meirihluta í kosningunum. Benjamin Netanjahú forsætisráðherra og formaður Likud flokksins fer fyrir annarri blokkinni og stjórnarandstöðuleiðtoginn Gadi Eisenkot fer fyrir hinni. Þeir hafa báðir lýst því yfir að ekki komi til greina að mynda ríkisstjórn með flokkum araba sem nærri tvöfölduðu fylgi sitt í kosningunum. Kjörsókn meðal ísraelskra araba jókst mikið.Herzog á fundi í dag með leiðtogum flokkanna og veitir svo umboð til stjórnarmyndunar þeim sem hann telur líklegastan til þess að ná saman ríkisstjórn. Ekki er víst að sá fái umboðið sem náði flestum þingsætum í kosningunum fyrir rúmri viku.Yfirkj
Gæti ráðist í dag hver fær stjórnarmyndunarumboð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar