Al-Hilal í Sádi-Arabíu ætlar ekki að gera aðra tilraun til að fá Bruno Fernandes, fyrirliða Manchester United, þrátt fyrir óvissu um framtíð hans á Old Trafford.Talksport greinir frá þessu en félagið hefur áður reynt að fá Portúgalann til sín. Fernandes hafnaði þá gylliboði þess.