Íbúar sunnan og vestan til gætu viljað klæðast fötum sem verja þá rigningu í dag því það verður skúrasamt framan af degi og þegar líður á kvöldið og nóttina rignir. Vindur fer vaxandi þegar kvöldar. Norðan og austan til verður rólegra veður og þurrt. Sunnan og suðvestan 5-13 metrar á sekúndu og dálitlar skúrir, en víða léttskýjað á Norður- og Austurlandi. Hiti 2 til 9 stig. Gengur í suðaustan 10-15 með rigningu seint í kvöld sunnan- og vestanlands.Sunnan 8-15 m/s og víða rigning á morgun, en heldur hægari og þurrt að kalla norðaustan- og austantil. Hiti 6 til 13 stig.